Við getum aðstoðað þitt fyrirtæki við að innleiða aðferðafræði til aukins árangurs.
Fáðu fagmenn til að aðstoða þig
Bjarki Jóhannesson
Bjarki Jóhannesson hefur óbilandi ástríðu fyrir því að hjálpa fyrirtækjum að ná betri árangri með skilvirkri aðferðafræði. Hann hefur mikla reynslu af rekstri frumkvöðlafyrirtækis enda stofnaði sitt fyrsta fyrirtæki 18 ára gamall. Fyrir 16 árum stofnaði hann ásamt félaga sínum fyrirtæki í upplýsingatækni sem fór í gegnum ólgusjó hrunsins. Árið 2014 var fyrirtækið komið með 40 manns í vinnu og velti hátt í milljarði. Það var síðan sameinað öðru fyrirtæki og var Bjarki í stjórnendateymi sameinaðs fyrirtækis í fjölda ára.
Í lok árs 2019 kynntist Bjarki EOS aðferðafræðinni og tók að sér að innleiða það í sínu fyrirtæki. Það ferli var mjög lærdómsríkt svo ekki sé meira sagt. Núna hefur hann sett saman aðferðafræði þar sem hann byggir á sinni reynslu og tvinnar hana saman við innleiðingu á hugbúnaði sem styður við vegferðina.
Bjarki er með Mastersgráðu í markaðsfræðum og hefur lokið námi í Executive Coaching í HR.
Fáðu fagmenn til að aðstoða þig
Helgi Már Þórðarson
Helgi hefur líkt og Bjarki ástríðu fyrir því að sjá aðra ná árangri. Hann var fyrsti starfsmannastjóri CCP, þar sem hann tók þátt í að byggja upp fyrirtækið upp frá 65 starfsmönnum á einni skrifstofu á Íslandi til alþjóðlegs fyrirtækis í þremur heimsálfum með yfir 600 starfsmenn.
Stuttu síðar var Helgi með-stofnandi netverslunarinnar (AHA), sem sameinaði matvörur, skyndibita, verslanir og gjafabréf frá meira en 1.000 seljendum með hátt í 150 starfsmönnum.
Helgi hefur verið mikill aðdáandi Patrick Lencioni og aðferðarfræði hans um heilsu fyrirtækja (e. organizational health) og tengir hugmyndir hans og annarra við aðferðarfræðina sam þeir Bjarki boða nú.
Á árunum 1994 – 1996 lærði Helgi íþróttafræði í Bandaríkjunum og stuttu síðar viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík.