Módelið

Stjórnaðu og styrktu sex lykil þættina í fyrirtækinu þínu.

1. Sýnin

Fyrsti lykil þátturinn er það sem við köllum sýnina. Það að styrkja þennan þátt þýðir að fá alla innan fyrirtækisins 100% á sömu blaðsíðu með það hvert fyrirtækið er að fara og hvernig það mun komast þangað.

– 6 Spurningar –
– Allir eru með-

2. Menningin

Annar lykil þátturinn er menningin. Þú getur ekki búið til frábært fyrirtæki nema umkringja þig með frábæru fólki og koma því í rétt sæti. Mannauðurinn og fyrirtækjamenningin er undirstaða þess að metnaðarfull sýn verði að veruleika.

– Rétt fólk og rétt sæti –
– Ábyrgð og heilbrigði

3. Gögnin

Þriðji lykil þátturinn er gögnin. Þú verður að horfa í gegnum allar tilfinningarnar, persónuleikana, skoðanirnar og egóin, en treysta þess í stað á hlutlægar tölur sem sýna þér hvernig púlsinn á fyrirtækinu slær í hverri viku.

– Skorkort-
– Allir eru mældir-

Með því að styrkja þessa þrjá þætti, þá byrjar þú að skapa öfluga, gagnsæja, opna og heiðarlega heild þar sem allt verður skýrt og þú byrjar að hrinda hindrunum úr vegi. Það leiðir okkur að næstu þrem þáttum …

4. Málefnin

Fyrirtækið þarf að verða frábært í að leysa úr málum (vandamál, hugmyndir, tækifæri, spurningar) sem rísa upp á hverjum tíma í gegnum allt fyrirtækið – forgangsraða þeim, skilgreina þau, ræða og leysa þannig að þau hverfi að eilífu.

– Málalisti-
– MSRL-

5. Ferlin

Ferlarnir eru það sem gera fyrirtækið þitt einstakt og því er gríðarlega mikilvægt að allir í fyrirtækinu viti hvernig hlutirnir eru gerðir. Allir verða fylgja ferlunum til að skapa samkvæmni og skalanleika.

– Skjöluð-
– Allir fylgja –

6. Umgjörðin

Þú byggir upp drifkraft, aga og ábyrgð innan fyrirtækisins með rétta fundarskipulaginu og hugbúnaði sem heldur utan um aðferðafræðina með einföldum hætti.

– Fundaskipulag –
–  Hugbúnaður –